
Snið án tengingar
Ótengda sniðið er ræst á fljótlegan hátt
með því að ýta á rofann og velja
Ótengdur
.
Til að skipta yfir í annað snið skaltu ýta
stuttlega á rofann og velja snið.
Þegar kveikt er á ótengda sniðinu eru allar
tengingar sem nota útvarpstíðni lokaðar.
Hins vegar er hægt að nota tækið án SIM-
korts og hlusta á útvarpið eða á tónlist.
Mundu að slökkva á tækinu þar sem
notkun þráðlausra síma er bönnuð.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki
hægt að hringja, svara símtölum eða nota
aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu
við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er
forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst
að virkja símaaðgerðina með því að skipta
um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá
inn lykilnúmerið.