
Um hugbúnað tækja og uppfærslur
forrita
Hugbúnaðaruppfærslur tækja og
uppfærslur forrita veita nýja möguleika og
bættar aðgerðir fyrir tækið þitt. Uppfærsla
á hugbúnaði getur einnig bætt afköst
tækisins.
Mælt er með að þú takir öryggisafrit af
persónulegum upplýsingum áður en þú
uppfærir hugbúnað tækisins.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til
að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið
endurræst.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum
getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi
næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið
áður en uppfærslan er ræst.
Eftir að þú uppfærir hugbúnað tækisins
eða forrit kunna leiðbeiningarnar í
notendahandbókinni að vera úreltar.
Hjálp 79
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.