
Uppfærsla hugbúnaðar tækisins með
tölvu
Þú getur notað tölvuforritið Nokia
Software Updater til að uppfæra
hugbúnað tækisins. Til að uppfæra
hugbúnaðinn í tækinu þarf samhæfa
tölvu, háhraða internettengingu og
samhæfa USB-gagnasnúru til að tengja
tækið við tölvuna.
Hægt er að fá nánari upplýsingar, skoða
athugasemdir fyrir nýjustu
hugbúnaðarútgáfur og sækja Nokia
Software Updater forritið á
www.nokia.com/softwareupdate.