Myndataka
Veldu >
Myndavél
.
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur
mynd:
•
Nota skal báðar hendur til að halda
myndavélinni kyrri.
•
Myndgæðin minnka þegar aðdráttur
er notaður.
•
Myndavélin fer í orkusparnaðarstöðu
hafi hún ekki verið notuð í u.þ.b. eina
mínútu.
•
Halda skal öruggri fjarlægð þegar
flassið er notað. Ekki má nota flassið
á fólk eða dýr sem eru mjög nálægt.
Ekki má hylja flassið þegar mynd er
tekin.
1 Til að skipta úr hreyfimyndastillingu
yfir í kyrrmyndastillingu, ef þörf
krefur, velurðu . Til að birta eða fela
tækjastikuna er flett til hægri eða
vinstri í landslagsstillingu.
2 Ýttu á skruntakkann. Hreyfðu ekki
tækið fyrr en myndin hefur verið
vistuð og og birtist á skjánum.
Myndir teknar með aukamyndavélinni
1 Veldu
Valkostir
>
Nota myndavél 2
.
2 Mynd er tekin með því að velja
Taka
mynd
. Hreyfðu ekki tækið fyrr en
myndin hefur verið vistuð og og birtist
á skjánum.
Aðdráttur notaður við myndatöku
Notaðu aðdráttartakkana.
Kveikt á myndavélinni í bakgrunni og
önnur forrit notuð
Ýttu á valmyndartakkann. Ýttu á
skruntakkann til að fara aftur í
myndavélarstillinguna.