Forsendur fyrir samnýtingu
hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst þess að
báðir aðilar séu með 3G-tengingu. Nánari
upplýsingar um þjónustuna, tiltæk 3G-
símkerfi og gjöld fyrir þessa þjónustu fást
hjá þjónustuveitunni.
Til að geta notað samnýtingu
hreyfimynda þarf að uppfylla eftirfarandi
atriði:
•
Að réttu P2P stillingarnar hafi verið
valdar, og að þú hafir þegið boð um
samnýtingu hreyfimynda eða sért að
tala í símann
•
Að þú hafir virka 3G-tengingu og sért
innan dreifisvæðis 3G-símkerfis. Ef þú
ferð út fyrir 3G-þjónustusvæði meðan
samnýting fer fram, þá rofnar hún en
símtalið heldur áfram.
•
Gakktu úr skugga um að bæði
sendandinn og viðtakandinn séu
skráðir á 3G-símkerfið. Ef þú býður
einhverjum í samnýtingu og tæki
viðtakandans er ekki tengt við 3G-
símkerfi, eða þá að samnýting eða
P2P hefur ekki verið sett upp í því, fær
viðtakandinn ekki boðið. Þú færð
villuboð um að viðtakandinn geti ekki
þegið boðið.