
Hringja símtal
Til að hringja slærðu inn símanúmerið,
ásamt svæðisnúmeri, og ýtir á
hringitakkann.
Ábending: Til að hringja til útlanda skaltu
setja inn plúsmerkið (+) í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins, sláðu því næst inn
landsnúmerið og svæðisnúmerið (slepptu
0 í upphafi ef með þarf) og svo
símanúmerið.
Til að ljúka símtali eða hætta við að
hringja ýtirðu á hætta-takkann.
Opnaðu tengiliðina til að hringja í
tengiliði sem eru vistaðir í minninu. Sláðu
inn fyrstu stafina í nafninu, flettu að
nafninu og ýttu á hringitakkann.
Til að hringja símtal með notkunarskránni
ýtirðu á hringitakkann til að sjá síðustu
númerin sem þú hringdir í eða reyndir að
hringja í (allt að 20 númer). Flettu að
númerinu eða nafninu sem þú vilt hringja
í og ýttu á hringitakkann.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla
hljóðstyrk símtals í gangi.
Til að skipta úr venjulegu símtali yfir í
myndsímtal velurðu
Valkostir
>
Skipta
yfir í myndsímtal
. Tækið slítur þá
raddsímtalinu og hefur myndsímtal við
viðtakandann.