Símtalsstillingar
Veldu >
Stillingar
og
Sími
>
Símtöl
.
Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Birtir símanúmerið
þitt þeim sem þú hringir í.
28 Sími
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Símtal í bið — Stilltu símann þannig að
þú fáir tilkynningu um símtöl sem berast
þegar þú ert að tala í símann
(sérþjónusta).
Hafna símtali með skilab. — Hafna
símtali og senda textaskilaboð til þess
sem hringir.
Texti skilaboða — Skrifa hefðbundin
textaskilaboð sem eru send þegar símtali
er hafnað.
Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða
hafna myndsendingu á meðan
myndsímtali stendur.
Mynd í myndsímtali — Birta kyrrmynd
ef myndsending á sér ekki stað í
myndsímtali.
Sjálfvirkt endurval — Stilltu símann
þannig að hámark 10 tilraunir eru gerðar
til að koma á sambandi við númerið sem
hringt er í. Ýttu á hætta-takkann til að
slökkva á sjálfvirka endurvalinu.
Sýna lengd símtala — Birta lengd
símtals á meðan á því stendur.
Samantekt símtals — Birta lengd
símtals þegar því lýkur.
Hraðval — Kveikja á hraðvali.
Takkasvar — Lyklaborðssvar virkjað.
Lína í notkun — Þessi stilling
(sérþjónusta) sést aðeins ef SIM-kortið
styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í
áskrift. Veldu hvaða símalínu á að nota til
að hringja og senda textaskilaboð. Það er
hægt að svara símtölum á báðum línum,
burtséð frá því hvor línan hefur verið valin.
Ef þú velur
Lína 2
en hefur ekki gerst
áskrifandi að þessari sérþjónustu geturðu
ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin
birtist táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Línuskipting — Til að hindra að skipt sé
á milli lína (sérþjónusta), ef SIM-kortið
styður það. Til að breyta þessari stillingu
þarftu að hafa PIN2-númerið.