
Ritun og sending skilaboða
Veldu >
Skilaboð
.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar
skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað eða
skaðað tölvuna eða tækið á einhvern
annan hátt.
Til að geta búið til margmiðlunarskilaboð
eða skrifað tölvupóst verða réttar
tengistillingar að vera fyrir hendi.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka
stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt
er inn fer yfir þessi mörk gæti tækið
minnkað hana þannig að hægt sé að
senda hana með MMS.
Athugaðu stærðartakmörk
tölvupóstskeyta hjá þjónustuveitunni. Ef
þú reynir að senda tölvupóst sem er yfir
mörkum tölvupóstmiðlarans eru
skilaboðin áfram í möppunni Úthólf og
tækið reynir reglulega að senda þau.
Gagnatenging er nauðsynleg til að senda
tölvupóst og endurteknar tilraunir til að
senda tölvupóst kunna að auka kostnað
vegna gagnaflutnings. Hægt er að eyða
Skilaboð 33
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

slíkum skilaboðum í möppunni Úthólf eða
færa þau yfir í möppuna Drög.
1 Veldu
Ný skilaboð
.
2 Til að senda texta- eða
margmiðlunarskilaboð velurðu
Skilaboð
. Til að senda
margmiðlunarskilaboð sem innihalda
eina hljóðskrá velurðu
Hljóðskilaboð
. Tölvupóstur er
sendur með því að velja
Tölvupóst
.
3 Í Til-reitnum skaltu ýta á
skruntakkann til að velja viðtakendur
eða hópa af tengiliðalistanum, eða slá
inn símanúmer eða netfang
viðtakandans. Semíkomma (;) sem
skilur að viðtakendur er sett inn með
því að ýta á *.. Einnig er hægt að afrita
og líma númer eða tölvupóstföng af
klemmuspjaldinu.
4 Sláðu inn efni margmiðlunarboða eða
tölvupósts í viðkomandi reit. Til að
fela eða birta reiti þegar texta- eða
margmiðlunarskilaboð eru skrifuð
velurðu
Valkostir
>
Skilaboðahausar
.
5 Skilaboðin eru skrifuð í
skilaboðareitinn. Til að setja inn
sniðmát eða minnismiða í texta- eða
margmiðlunarskilaboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn texta
>
Sniðmát
eða
Minnismiða
. Sniðmáti er bætt við
tölvupóst með því að velja
Valkostir
>
Setja inn sniðmát
.
6 Til að bæta miðlunarskrá við
margmiðlunarskilaboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
, tegund
skráar eða slóð og síðan tiltekna skrá.
Til að bæta nafnspjaldi, skyggnu,
minnismiða eða einhverri annarri
skrá við skilaboðin velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn annað
.
7 Til að taka mynd eða taka upp hljóð
eða myndskeið fyrir
margmiðlunarboð velurðu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja
inn mynd
>
Nýja
,
Setja inn
myndskeið
>
Nýtt
eða
Setja inn
hljóð
>
Nýtt
.
8 Til að festa viðhengi við tölvupóst
velurðu
Valkostir
>
Bæta við
viðhengi
, minnið og skrána sem festa
skal við póstinn. sýnir að pósturinn
er með viðhengi.
9 Veldu
Valkostir
>
Senda
eða ýttu á
hringitakkann til að senda skilaboðin.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir
eru í boði.
Til athugunar: Táknið um að
skilaboð hafi verið send, eða texti sem
birtist á skjá tækisins, merkir ekki að
viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir
takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri
skilaboð eru send sem tvö eða fleiri
skilaboð. Þjónustuveitan tekur
hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða
valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem
hægt er að senda í einum skilaboðum.
Ekki er víst að hægt sé að senda
myndskeið sem eru vistuð á MP4-sniði eða
sem fara yfir leyfilega stærð
margmiðlunarboða á símkerfinu.
34 Skilaboð
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.