A-GPS (Assisted GPS)
Tækið styður einnig GPS með leiðsögn (A-
GPS).
A-GPS þarf netstuðning.
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá
hjálpargögn með pakkagagnatengingu
og hjálpar við að reikna út hnit
staðsetningar þinnar þegar tækið tekur
við merkjum frá gervitunglum.
Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið á
móti gervihnattaupplýsingar frá
hjálpargagnamiðlara um farsímakerfið.
Tækið getur verið fljótara að ná GPS-
staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia
A-GPS þjónustuna, ef engar sérstakar A-
GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í
boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá
Nokia A-GPS þjónustumiðlaranum þegar
þörf krefur.
A-GPS þjónustan er gerð óvirk með því að
velja >
Forrit
>
GPS-gögn
og
Valkostir
>
Stillingar staðsetninga
>
Staðsetningaraðferðir
>
GPS með
stuðningi
>
Valkostir
>
Slökkva
.
Það verður að vera
internetaðgangsstaður í tækinu til að
hægt sé að sækja hjálpargögn frá Nokia A-
GPS þjónustunni um
pakkagagnatengingu. Hægt er að
tilgreina aðgangsstað fyrir A-GPS í
staðsetningarstillingum. Aðeins er hægt
að nota internetaðgangsstað fyrir
pakkagögn. Tækið biður þig um að velja
internetgangsstaðinn í fyrsta skipti sem
GPS er notað.
Staðsetning 49
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.