
Kortayfirlit
Veldu >
Kort
.
Velkomin/n í Kort.
Korr sýna þér hvað er í nágrenninu,
auðvelda þér að skipuleggja ferðina og
leiðbeinir þér á ákvörðunarstað.
•
Finndu borgir, götur og þjónustu.
•
Finndu leiðina með leiðsögn skref
fyrir skref.
•
Samstilltu uppáhaldsstaði þína á milli
farsímans og Ovi Maps
internetþjónustunnar.
•
Skoðaðu veðurspár og aðrar
staðbundnar upplýsingar, ef þær eru í
boði.
Til athugunar: Við niðurhal á efni
eins og kortum, gervihnattamyndum,
hljóðskrám eða umferðarupplýsingum
getur verið um mikinn gagnaflutning að
ræða (sérþjónusta).
Ekki er víst að allar þjónustur séu tiltækar
í öllum löndum og þær kunna að vera
eingöngu í boði á völdum tungumálum.
Þjónusturnar kunna að vera háðar
netkerfi. Símafyrirtækið gefur nánari
upplýsingar.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og
ófullnægjandi að einhverju leyti. Aldrei
skal treysta eingöngu á kort sem hlaðið
hefur verið niður til notkunar með þessu
tæki.
Efni á borð við gervihnattarmyndir,
leiðbeiningar, veður- og
umferðarupplýsingar og tengd þjónusta
er útbúin af þriðju aðilum sem tengjast
ekki Nokia. Efnið kann að vera ónákvæmt
og ófullnægjandi að einhverju leyti og
veltur á framboði. Aldrei skal treysta
eingöngu á fyrrgreint efni og tengda
þjónustu.