Nokia C5 00 - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Maps sýnir hvar þú ert staddur á kortinu

með GPS, A-GPS eða staðsetningu byggðri

á auðkenni endurvarpa.
GPS (Global Positioning System) er

leiðsögukerfi sem byggir á móttöku

staðsetningarupplýsinga frá

gervitunglum til að reikna út staðsetningu

þína. A-GPS (Assisted GPS) er sérþjónusta

sem sendir þér GPS-gögn, sem eykur

hraða og nákvæmni staðsetningarinnar.
Með staðsetningu byggðri á auðkennum

endurvarpa er staðan ákvörðuð gegnum

loftnetsturninn sem tækið er tengt við

eins og er.
Nákvæmni staðsetningarinnar getur

skeikað frá nokkrum metrum til nokkurra

kílómetra, eftir því hvaða

staðsetningaraðferð er tiltæk.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti

er beðið um að þú tilgreinir

internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður

kortaupplýsingum eða nota A-GPS.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er

rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla

ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi.

Nákvæmni staðsetningargagna kann að

verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-

50 Staðsetning

© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

gervihnöttum sem gerðar eru af

Bandaríkjastjórn og kann að breytast í

samræmi við stefnu

varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um

borgaralegt GPS og alríkisáætlun um

þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á

nákvæmni. Staðsetning, byggingar,

náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða

kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði

GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki

náist ekki inni í byggingum eða

neðanjarðargöngum og þau geta orðið

fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og

málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar

staðsetningarmælingar og aldrei ætti að

treysta eingöngu á staðsetningargögn frá

GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir

staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki

fullkominn og sléttunarvillur eru

mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.