
Um GPS
GPS-kerfið (Global Positioning System) er
rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla
ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi.
Nákvæmni staðsetningargagna kann að
verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-
gervihnöttum sem gerðar eru af
Bandaríkjastjórn og kann að breytast í
samræmi við stefnu
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um
borgaralegt GPS og alríkisáætlun um
þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði
gervihnatta getur einnig haft áhrif á
nákvæmni. Staðsetning, byggingar,
náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða
kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði
GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki
náist ekki inni í byggingum eða
neðanjarðargöngum og þau geta orðið
fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og
málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar
staðsetningarmælingar og aldrei ætti að
treysta eingöngu á staðsetningargögn frá
GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir
staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki
fullkominn og sléttunarvillur eru
mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á
móttöku og gæðum GPS-merkja.
Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp
samkvæmt alþjóðlega WGS-84
hnitakerfinu. Það er mismunandi eftir
svæðum hvort hnit séu í boði.