
Snið
Veldu >
Stillingar
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna,
viðvörunartóna og aðra tóna tækisins fyrir
mismunandi viðburði, umhverfi og
viðmælendahópa. Sniðið sem er í notkun
sést efst á skjánum í biðstöðu. Ef sniðið
Almennt er í notkun birtist aðeins
dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýtt
og tilgreina
stillingarnar.
Til að laga snið að þínum þörfum velurðu
sniðið og svo
Valkostir
>
Sérsníða
.
Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Gera virkt
.
Til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í
allt að 24 tíma skaltu fletta að sniðinu,
velja
Valkostir
>
Tímastillt
og svo
tímann. Þegar tíminn er liðinn verður fyrra
sniðið sem var ekki tímastillt virkt aftur.
Þegar snið er tímastillt birtist á
skjánum í biðstöðu. Ekki er hægt að stilla
ótengda sniðið á tíma.
Stillingar tækisins sérsniðnar 21
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Til að eyða sniði sem þú hefur búið til
velurðu
Valkostir
>
Eyða sniði
. Þú getur
ekki eytt forstilltu sniðunum.
Þegar sniðið Án tengingar er virkt er lokað
á tengingu þína við farsímakerfið. Lokað
er á allar sendingar útvarpsmerkja á milli
tækisins og farsímakerfisins. Ef þú reynir
að senda skilaboð er það geymt í
möppunni úthólf og er einungis sent
þegar kveikt er á öðru sniði.
Hægt er að nota tækið án SIM-korts. Ef þú
fjarlægir SIM-kortið verður sniðið Án
tengingar virkt.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki
hægt að hringja, svara símtölum eða nota
aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu
við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er
forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst
að virkja símaaðgerðina með því að skipta
um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá
inn lykilnúmerið.
Þegar þú notar sniðið Án tengingar
geturðu áfram notað Bluetooth-
tengingar. Mundu að fara að öllum
viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur
á og notar Bluetooth-tengingu.
22 Stillingar tækisins sérsniðnar
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.