Öryggi tækis og SIM-korts
Veldu >
Stillingar
>
Stillingar
>
Almennar
>
Öryggi
.
Til að breyta PIN-númerinu velurðu
Sími
og SIM-kort
>
PIN-númer
. Nýja númerið
verður að vera 4 til 8 tölustafir. PIN-
númerið fylgir SIM-kortinu og tryggir að
óviðkomandi geti ekki notað það. Ef rangt
PIN-númer er slegið inn þrisvar sinnum í
röð lokast númerið og opna verður það
með PUK-númeri áður en hægt er að nota
SIM-kortið aftur.
Til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa eftir
tiltekinn tíma velurðu
Sími og SIM-kort
>
Sjálfvirk læsing takka
.
Til að stilla eftir hversu langan tíma tækið
læsist sjálfkrafa, þannig að aðeins er hægt
að nota það ef réttur læsingarkóði er
sleginn inn, velurðu
Sími og SIM-kort
>
Sjálfv. læsingartími síma
. Sláðu inn
tímann í mínútum eða veldu
Enginn
til að
gera sjálfvirkur lásinn óvirkan. Þegar
tækið er læst er áfram hægt að svara
innhringingum og hugsanlega er áfram
hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í það.
Læsingarkóðanum er breytt með því að
velja
Sími og SIM-kort
>
Læsingarkóði
.
Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Sláðu
inn núverandi kóða og svo það nýja
tvisvar. Nýja númerið má vera 4-255 stafa
langt. Nota má bæði bókstafi og tölustafi
(há- og lágstafi). Tækið lætur þig vita ef
læsingarkóðinn er ekki forsniðinn á réttan
hátt.