Nokia C5 00 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Rafhlaðan hefur verið hlaðin að hluta í

verksmiðjunni en e.t.v. þarftu að

endurhlaða hana áður en þú getur kveikt

á tækinu í fyrsta sinn.
Ef tækið sýnir að lítil hleðsla sé eftir skaltu

gera eftirfarandi.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við

innstungu.

2 Tengdu hleðslutækið við tækið.

3 Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu

fyrst taka hleðslutækið úr sambandi

við tækið og síðan úr innstungunni.

Ekki þarf að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn

tíma og hægt er að nota tækið á meðan

það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm

geta liðið nokkrar mínútur þar til

hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar

til hægt er að hringja.
Ábending: Ef þú átt gömul samhæf

Nokia-hleðslutæki geturðu notað þau

með tækinu með því að festa CA-44-

millistykkið við gamla hleðslutækið. Hægt

er að fá millistykkið sem aukabúnað.
USB-hleðsla

Hægt er að nota USB-hleðslu ef

rafmagnsinnstunga er ekki til staðar. Það

tekur lengri tíma að hlaða tækið með USB-

gagnasnúrunni. Mjög misjafnt er hvernig

USB-hleðsla virkar. Í sumum tilvikum

getur tekið mjög langan tíma þar til

hleðsla hefst og hægt er að taka tækið í

notkun.
Einnig er hægt að flytja gögn um USB-

gagnasnúruna á meðan tækið er hlaðið.
1 Tengdu samhæft USB-tæki við tækið

þitt með samhæfri USB-gagnasnúru.

Það fer eftir tækinu sem notað er til

hleðslu hve langur tími líður þar til

hleðslan hefst.

2 Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja

úr USB-stillingum á skjá tækisins.

Tækið tekið í notkun

9

© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.