Vertu í sambandi við vini þína á netinu
Hægt er að samstilla
tengiliðarupplýsingar á tækinu við vini á
Facebook. Einnig er hægt að stofna nýja
Facebook-áskrift í tækinu.
Þegar samstilling er leyfð er hægt að sjá
notandaupplýsingar tengiliðanna á
Facebook-síðum þeirra, svo sem mynd af
þeim ásamt uppfærslu á status, í
tengiliðaforritinu í tækinu. Þú færð einnig
að vita hve margir tengiliðir voru
samstilltir.
Að samstillingu lokinni er tengiliðatáknið
sýnilegt á síðu vinarins og hægt er að
hringja og senda skilaboð með Facebook-
forritinu.
Það er sérþjónusta sem sér um að
samstilla tengiliði og sækja
statusuppfærslu. Reiki og
gagnaflutningsgjöld kunna að vera
innheimt. Ef félagsnetið er ekki tiltækt eða
virkar ekki sem skyldi er ekki víst að hægt
sé að samstilla eða sækja
statusuppfærslur.
Ekki er víst að þessi aðgerð sé í boði alls
staðar.