
Pörun tækja
Veldu >
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið
lykilorð (1-16 tölustafir) og biðja notanda
hins tækisins um að nota sama lykilorð.
Tæki sem ekki hafa notendaviðmót eru
með fast lykilorð. Aðeins þarf að slá inn
lykilorðið þegar tækin eru tengd í fyrsta
skipti. Hægt er að heimila tenginguna að
pöruninni lokinni. Með því að para saman
tæki og heimila tenginguna verður
fljótlegra að koma á tengingu þar sem
ekki þarf að samþykkja tenginguna á milli
paraðra tækja í hvert skipti sem henni er
komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að
vera 16 tölustafir.
Í ytri SIM-stillingu er hægt að nota SIM-
kort tækisins með samhæfum
aukabúnaði.
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa
tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukabúnaði
sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði).
Tengingar 41
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa
tækinu þegar stillingin er virk, nema í
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að
slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur
verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til
að opna það.
1 Veldu
Valkostir
>
Nýtt parað tæki
.
Tækið byrjar þá að leita að Bluetooth-
tækjum á svæðinu. Ef gögn hafa áður
verið send um Bluetooth-tengingu
birtist listi með fyrri
leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri
Bluetooth-tækjum innan svæðisins
með því að velja
Fleiri tæki
.
2 Veldu tækið sem para á tækið þitt við
og sláðu inn lykilorðið. Slá verður
sama lykilorð inn í hitt tækið.
3 Til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu
milli tækisins þíns og annars tækis
skaltu velja
Já
. Til að staðfesta
tenginguna handvirkt í hvert sinn sem
tækin reyna að tengjast skaltu velja
Nei
. Eftir pörunina er tækið vistað á
síðu paraðra tækja.
Til að gefa paraða tækinu gælunafn
velurðu
Valkostir
>
Gefa stuttnefni
.
Gælunafnið birtist eingöngu í þínu tæki.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo
Valkostir
>
Eyða
. Til að eyða öllum
pörunum velurðu
Valkostir
>
Eyða
öllum
. Ef tækið er tengt við annað tæki og
pöruninni við það er eytt, er pörunin
fjarlægð strax og tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast
sjálfkrafa við þitt tæki velurðu
Stilla sem
heimilað
. Hægt er að koma á tengingu á
milli tækisins þíns og hins tækisins án
vitneskju þinnar. Ekki þarf að samþykkja
eða heimila tenginguna sérstaklega.
Notaðu þessa stöðu eingöngu fyrir eigin
tæki, líkt og samhæf höfuðtól eða tölvu,
eða tæki þeirra sem þú þekkir og treystir.
Ef þú vilt samþykkja tengingarbeiðni frá
hinu tækinu í hvert skipti velurðu
Stilla
sem óheimilað
.
Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað,
t.d. handfrjálsan Bluetooth-búnað eða
höfuðtól, þarf að para tækið við
aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar
leiðbeiningar eru í notendahandbók
aukabúnaðarins. Kveiktu á
hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við
hann. Ákveðnar gerðir hljóðaukabúnaðar
tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist
ekki skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki,
velja aukabúnaðinn og
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
.