Sending og móttaka gagna með
Bluetooth
Veldu >
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
1 Þegar kveikt er á Bluetooth í fyrsta
skipti ertu beðin/n um að gefa tækinu
nafn. Gefðu tækinu þínu
auðþekkjanlegt nafn svo auðveldara
verði að bera kennsl á það þegar mörg
Bluetooth-tæki eru í nágrenninu.
2 Veldu
Bluetooth
>
Kveikt
.
3 Veldu
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
eða
Tilgreina
tímabil
. Ef þú velur
Tilgreina tímabil
þarftu að tilgreina þann tíma sem
tækið þitt er sýnilegt öðrum.
40 Tengingar
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Notendur annarra Bluetooth-tækja
geta nú séð tækið og nafnið sem var
slegið inn.
4 Opnaðu forritið sem geymir hlutinn
sem þú vilt senda.
5 Veldu hlutinn og síðan
Valkostir
>
Senda
>
Með Bluetooth
. Tækið
leitar að Bluetooth-tækjum innan
svæðisins og birtir þau í lista.
Ábending: Ef gögn hafa áður verið
send um Bluetooth-tengingu birtist
listi með fyrri leitarniðurstöðum. Til
að leita að fleiri Bluetooth-tækjum
velurðu
Fleiri tæki
.
6 Veldu tækið sem þú vilt tengjast við.
Ef hitt tækið fer fram á pörun áður en
hægt er að flytja gögn er beðið um
aðgangskóða.
Þegar tengingu hefur verið komið á birtist
textinn
Sendi gögn
.
Mappan Sent í forritinu Skilaboð vistar
ekki skilaboð sem hafa verið send um
Bluetooth.
Til að sækja gögn um Bluetooth-tengingu
velurðu
Bluetooth
>
Kveikt
og
Sýnileiki
síma míns
>
Sýnilegur öllum
til að
sækja gögn frá ópöruðu tæki eða
Falinn
til að sækja eingöngu gögn frá pöruðu
tæki. Þegar gögn berast um Bluetooth
heyrist tónn og spurt er hvort taka eigi á
móti skilaboðunum sem innihalda
gögnin, allt eftir stillingum á sniðinu sem
er virkt. Ef þú samþykkir eru skilaboðin
sett í innhólfsmöppuna í forritinu
Skilaboð.
Ábending: Hægt er að nálgast skrárnar í
tækinu eða á minniskortinu með því að
nota samhæfan aukahlut sem styður FTP
(til dæmis fartölvu).
Sjálfkrafa er slökkt á Bluetooth-tengingu
eftir að gögn hafa verið send eða
móttekin. Aðeins er hægt að hafa
tengingar sem ekki er verið að nota í gangi
ef tengingin er við Nokia Ovi Suite eða
aukabúnað, eins og höfuðtól.