Nokia C5 00 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en

rafhlaðan er fjarlægð. Þegar hleðslutæki eða aukabúnaður er

tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal taka það úr sambandi

við rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki má hafa fullhlaðna

rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur

stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni

smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá

59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og

líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að

hætta að starfa tímabundið.

Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur kemst

í snertingu við málmrendurnar á rafhlöðunni, til dæmis þegar

vararafhlaða er höfð í vasa. Skammhlaup getur valdið

skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur

tengingunni.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið.

Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og

reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt

er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða

tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka má vökvinn ekki

komast í snertingu við húð eða augu. Gerist það skal þegar í

stað hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna

með vatni eða leita læknisaðstoðar.

Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna

sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra

vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður geta sprungið ef þær

skemmast.

Aðeins skal nota rafhlöðuna og hleðslutækið til þess sem þau

eru ætluð. Röng notkun eða notkun ósamþykktra rafhlaða

eða hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu eða haft

aðra áhættu í för með sér og öll ábyrgð og samþykktir kunna

þá að falla niður. Ef þú telur að rafhlaðan eða hleðslutækið

hafi skemmst, skaltu fara með það til þjónustuvers til

skoðunar áður en þú heldur áfram að nota það. Aldrei skal

nota skemmda rafhlöðu eða hleðslutæki. Hleðslutækið skal

aðeins nota innandyra.