Hringt í neyðarnúmer
1
Gæta skal þess að kveikt sé á tækinu.
2
Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur er fyrir hendi.
Einnig kann að vera nauðsynlegt að gera eftirfarandi:
•
Komdu SIM-korti fyrir.
•
Afnema skal símtalatakmarkanir, sem eru virkar
í tækinu, svo sem útilokun, fast númeraval og
lokaðan notendahóp.
•
Gæta skal þess að ótengt snið og flugsnið séu ekki
virk.
3
Ýta skal endurtekið á hætta-takkann þar til
heimaskjárinn kemur upp.
4
Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi
svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
5
Styddu á hringitakkann.
6
Gefa skal upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins
nákvæmlega og kostur er. Ekki má slíta símtali fyrr en
að fengnu leyfi til þess.
Mikilvægt: Kveikja skal bæði á hringingum um
farsímakerfið og internetið, ef tækið styður símtöl um
internetið. Tækið reynir bæði að koma á neyðarsímtölum í
84 Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala. Ekki er hægt
að tryggja tengingar við hvaða skilyrði sem er. Aldrei skal
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í bráðatilvikum.