Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif
af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er
hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu
vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem
ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er
notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk
SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/
kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af
líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á
öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur
tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem
tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til að
ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn,
t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir
notkun tækisins við eyra 1,34 W/kg .
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-
gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa
sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs.
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um
vörur á www.nokia.com.
86 Vöru- og öryggisupplýsingar
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-645 er
í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í
tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er
að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
© 2010-2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Nokia, Nokia Connecting People, Navi, OVI og Nokia Original
Enhancements logo eru vörumerki eða skrásett vörumerki
Nokia Corporation. Nokia tune er tónmerki Nokia
Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti fyrirtækja sem nefnd
eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi
eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta
skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram
fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem
felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera
breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu
skjali án undangenginnar tilkynningar.
This software is based in part of the work of the FreeType
Team. This product is covered by one or more of the following
patents: United States Patent 5,155,805, United States Patent
5,325,479, United States Patent 5,159,668, United States
Patent 2232861 and France Patent 9005712.
Java and all Java-based marks are trademarks or registered
trademarks of Sun Microsystems, Inc.
Portions of the Nokia Maps software are ©1996-2011 The
FreeType Project. All rights reserved.
Þessi vara er háð leyfinu MPEG-4 Visual Patent Portfolio
License (i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í
tengslum við upplýsingar sem hafa verið kótaðar samkvæmt
staðlinum MPEG-4 Visual Standard af neytanda í
persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til
notkunar í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá
hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða
undirskilið til neinnar annarrar notkunar.
Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í
auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá
MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA
EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM
KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á
GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,
TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM
ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“.
UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI
BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA
EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI
EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI
TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ
ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM
ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Bakhönnun (e. reverse engineering) hugbúnaðar í tækinu er
bönnuð eins og lög segja til um. Að því marki er þessi
notendahandbók inniheldur einhverjar takmarkanir á
fyrirsvari, ábyrgðum og skaðabótaskyldu Nokia, auk
takmarkana á fjárhæð skaðabóta, skulu þær takmarkanir
einnig ná til sérhvers fyrirsvars, ábyrgða og skaðabótaskyldu
leyfisveitanda Nokia, auk takmarkana á fjárhæð skaðabóta.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir
þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu
það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia-söluaðila þínum.
Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem
lýtur útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og
öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki
samræmast lögum eru óheimilar.
TILKYNNING FRÁ ALRÍKISNEFNDINNI UM FJARSKIPTI (FCC)
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til
dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC getur
krafist þess að þú hættir að nota símann ef ekki er hægt að
koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa
samband við þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þetta tæki er í
samræmi við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð
eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda
skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður að taka við öllum
truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta
valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem Nokia
hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild
notandans til notkunar búnaðarins.
Sumar aðgerðir og valkostir velta á SIM-kortinu og/eða
símkerfinu, MMS, eða samhæfni tækja og því um hvaða efni
87
er að ræða. Viðbótargjald er tekið fyrir notkun sumrar
þjónustu.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður
þriðju aðila. Einnig er hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í
tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki Nokia og Nokia
hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja
slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
/Útgáfa 3.0 IS
88