
Vernda skal tækið gegn skaðlegu efni
Vírusar og annað skaðlegt efni hafa áhrif á tækið. Gera skal
eftirfarandi varúðarráðstafanir:
•
Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Þau geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tækið eða
tölvuna á einhvern annan hátt.
•
Fara skal með gát þegar tengibeiðnir eru samþykktar,
vafrað er á netinu eða efni er hlaðið niður. Ekki skal
samþykkja Bluetooth-tengingar frá aðilum sem ekki er
treyst.
•
Aðeins skal setja upp og nota þjónustu og hugbúnað
frá aðilum sem er treyst og sem veita nægilegt öryggi
og vörn.
•
Setja skal upp vírusvarnarhugbúnað og annan
öryggishugbúnað í tækinu og tölvum sem tengjast við
það. Aðeins skal nota eitt vírusvarnarforrit í einu. Ef
fleiri eru notuð getur það haft áhrif á afkastagetu og
virkni tækisins og/eða tölvunnar.
•
Ef opnuð eru foruppsett bókamerki eða tenglar að
netsíðum þriðju aðila skal gera viðeigandi
varúðarráðstafanir. Nokia leggur hvorki stuðning sinn
við né tekur ábyrgð á slíkum síðum.